Guðfinna Ýr Róbertsdóttir

Ég hef yfir 20 ára reynslu af hönnun, stafrænni þróun, verkefnastjórnun, vörumerkjum og markaðsmálum. Ég hef starfað á auglýsingastofum, rekið hönnunarstofuna Zebra og unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir.

Nýlega hannaði ég útlit og notendaviðmót fyrir nýja vefverslun Garra og nýja vefi Gildis og Birtu, sem eru væntanlegir. Ég hef einnig unnið að vefjum, öppum, stafrænum lausnum, herferðum og þróun vörumerkja, meðal annars hjá Advania.

Styrkur minn liggur í að sjá heildarmyndina, einfalda flókin viðfangsefni og tengja saman hönnun, tækni og þarfir fólks. Ég er vön að vinna þvert á teymi og leiða verkefni frá hugmynd til vandaðrar framkvæmdar. Verk mín hafa hlotið viðurkenningar fyrir grafíska hönnun, vefhönnun og apphönnun.

Ég er með BA-gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og framhaldsmenntun í Interactive Multimedia frá Sheridan College í Kanada.

Skoða ferilskrá →